Ný trúarmenning í mótun
Dagana 18.-20. október nk. boðar Kjalarnessprófastsdæmi í sjöunda sinn til prédikunarseminars í Skálholti. Höfuðviðfangsefni seminarsins er inntak og eðli prédikunarinnar við breyttar forsendur í nútímasamfélagi. Hvernig túlkar prédikarinn fjölbreytilega reynslu fólks, hvað er trúarleg reynsla, hvernig birtist hið trúarlega í eftir-afhelguðu samfélagi? Hið trúarlega getur birst sem tilfinning þar sem einstaklingurinn er vakinn til umhugsunar um tilgang og merkingu lífsins. Hér er spurning um guðfræði, um aðferð og túlkun guðfræðingsins á samfélagi líðandi stundar.
Aðalfyrilesarinn er dr. Wilhelm Gräb (f. 1948) prófessor í praktískri guðfræði við Humboldt háskólann í Berlín. Hann er þekktur guðfræðingur í Þýskalandi og hefur verið afkastamikill á ýmsum sviðum praktískrar guðfræði, m.a. hefur hann skrifað mikið um prédikunarfræði, kirkju og list, og hlutverk fjölmiðla. Hann hefur jafnframt fjallað talsvert um trúarlega reynslu í vestrænum nútímasamfélögum. Hann flytur tvo fyrirlestra í Skálholti sem byggjast á reynsluguðfræði samtímans: Sá fyrri nefnist Breytt trúarmenning, frá afhelgun til eftir-afhelgunar. Síðari fyrirlesturinn nefnist: Breytt trúarmenning sem hvati nýrrar guðfræðihugsunar. Umfjöllun um trúarlegt inntak í kvikmyndum. Milli fyrirlestranna mun hann stýra umræðum á ensku um kvikmyndina Babel. Erindin verða flutt á ensku en útdráttur á íslensku verður afhentur á undan.
Í hugvekjum verða klassísku miskunnarverkin tekin fyrir, af miskunnarverkunum sex (skv. Matt. 25) verður aðeins fjallað um fjögur af dagskrártæknilegum ástæðum. Þau eru: Þér gáfuð mér að drekka (Sr. Guðmundur Örn Jónsson), þér hýstuð mig (sr. Guðrún Karlsdóttir), þér klædduð mig (sr. Sigurður Jónsson) og þér komuð til mín (sr. Agnes M. Sigurðardóttir). Á mánudagskvöldi er boðið upp á setustofuspjall við arineld: Prédikunin: list orðsins. Þar flytur erindi Gunnar Stefánsson dagskrárfulltrúi.
Nánari upplýsingar gefa prófastur og héraðsprestar Kjalarnessprófastsdæmis í síma 566 7301.
Boðið er upp á rafræna skráningu hér fyrir neðan, einnig er hægt að skrá sig í Skálholtsskóla í síma 486 8870.
[contact-form 404 "Not Found"]

