Kammerkórinn Sankt Sigfrid

sanktsigfrid_featureFöstudaginn 2. október nk. kl. 20.00 heldur Kammerkórinn Sankt Sigfrid frá dómkirkjunni í Växjö í Svíþjóð tónleika í Skálholtsdómkirkju. Stjórnandi er Yvonne Steen Ohlander. Aðgangur er ókeypis.

Þetta er blandaður 25 manna kór. Kórinn syngur við flestar athafnir í dómkirkjunni í Växjö í Suður-Svíþjóð. Þar að auki heldur kórinn tónleika á eigin vegum.

Á tónleikunum í Skálholtsdómkirkju verða sungin sænsk þjóðlög, vestræn sálmalög og negrasálmar.

Hér má heyra tóndæmi frá kórnum á Mpeg-sniði: Total praise.