Söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar

Sérvalin mynd

Dagana 1.-4. október nk. býður Jón Þorsteinsson tenórsöngvari og söngkennari í Utrecht söngáhugafólki upp á námskeið í Skálholtsskóla. Í tónlistarkennslu sinni styðst Jón við svokallaða Lichtenbergeraðferðafræði um uppruna hljóms í mannslíkamanum. Þetta er starfræn aðferð sem þróuð hefur verið í Lichtenberg í Þýskalandi. Aðferðin gengur út á algjöra og eðlislæga þróun raddarinnar sem hljóms og aðgreiningu hljóms og tóns án þess að utanaðkomandi truflun hafi of mikil áhrif. Einnig verður fjallað um kennslufræði Lampertis og Piero Tosi sem og Jóhanns Friedrichs Agricola. Kennsla fer fram í hóptímum, með fyrirlestrum og þjálfun. Að þessu sinni er nemendum auk þess boðið upp á að koma með eigin viðfangsefni og syngja við undirleik Tómasar Guðna Eggertssonar organista.

Hámarksfjöldi er 18 manns. Nú þegar hafa 18 manns skráð sig svo fullt er á námskeiðið! Næsta námskeið Jóns er í lok janúar nk. Rafræn skráning fer fram hér neðst á síðunni.

Námskeiðið hefst á fimmtudegi kl. 18.00 og stendur fram á miðjan sunnudag. Námskeiðsgjald er kr. 16.000 og dvalar- og fæðisgjald kr. 26.000 á mann. Staðfestingargjald er kr. 10.000. Nánari upplýsingar má fá í síma 486-8870 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið rektor[hjá]skalholt.is.

Hver er Jón Þorsteinsson?

Jón Þorsteinsson er fæddur á Ólafsfirði 1951. Hann hóf söngnám í Osló árið 1974 hjá óperusöngkonunni Marit Isene, sem þár var einn virtasti söngkennari Normanna, en hélt síðan námi sínu áfram við Den Norske Musikhögskole. Eftir þriggja ára dvöl í Osló hélt Jón ti Árósa í Danmörku og nam þar söng næstu þrjú ár við Det Jyske Musikkoservatorium. Síðan lá leiðin til Modena á Ítalíu þar sem hann stundaði nám hjá hinum heimsfræga söngkennara Arrigo Pola.

Um tveggja ára skeið söng Jón, fyrstur Íslendinga, í kór Wagner-óperuhátíðarinnar í Bayreuth, (Bayreuther Fespiele),  í Þýskalandi, en árið 1980 urðu þáttaskil á söngferli hans þegar hann fluttst til Hollands og réðist til Ríkisóperunar í Amsterdam þar sem hann starfaði fyrstu tvö árin í kór óperunnar, en síðan rúman áratug sem einsöngvari og söng þar um fimmtíu einsöngshlutverk. Auk þess hefur Jón sungið á óperusviði og í tónleikasal í flestum löndum Evrópu og í Bandaríkjunum. Á liðnum árum hefur hann einnig sungið með Pólýfónkórnum og fleiri íslenskum kórum, Sinfóníuhlmsveit Íslands, Íslensku hljómsveitinni og í Íslensku óperunni. Einnig hefur hann stundað söngennslu um árabil á Íslandi og í Hollandi.

Árið 1981 vann Jón Þorsteinsson fyrstu verðlaun í kirkjutónleistakeppni Konunglega kirkjutónlistarsambandsins í Hollandi og á liðnum árum hefur hann einkum getið sér frægðarorð á meginlandi Evrópu frir snjalla túlkun sína á sígildri kkjutónlist og nútímatónlist.

Haustið 2007 kom út geisladiskurinn, Ó, Jesú, að mér snú, sálmar og trúarljóð, með söng Jóns, við undirleik Harðar Áskelssonar organista Hallgrímskirkju og söngmálastjóra Þjóðkirkjunnar. Þessi diskur hefur vakið verðskuldaða athygli enda hafa tónleikar þeirra félaga verið hvarvetna vel sóttir, jafnt á Akureyri, í Hallgrímskirkju og Skálholtsdómkirkju.

Frá árinu 2007 hefur Jón verið fastur gestadocent við Konunglega Tónlistarháskólann í Den Haag og haustið 2008 var Jón ráðinn docent við Tónlistarháskólann í Utrecht í Hollandi.

Rafræn skráning á söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar 1.-4. sept. 2011

Fullt nafn (krafist)

Kennitala (krafist)

Netfang (krafist)

Símanúmer (a.m.k. eitt)

Fjöldi þátttakenda:

Skilaboð

Leggðu saman tvo og tvo = 
[Þetta er til að koma í veg fyrir ruslpóst]