Þjónandi forysta – námskeið

Sérvalin mynd

Leiðtogar hafa sjaldan verið jafn mikið á milli tannanna á fólki og undanfarin misseri. Borið hefur á harðri gagnrýni í garð þeirra sem gegnt hafa því hlutverki og hugsjónin um öflugan leiðtoga hefur að margra mati beðið skipbrot. Sú leiðtogaímynd sem einkennir íslenskt viðskiptalíf og stjórnmálalíf til skamms tíma á sér því fáa formælendur. Á móti kemur að þörfin fyrir öfluga leiðtoga er afar brýn nú þegar leitað er að nýjum grundvelli til þess að byggja samfélagið á.

Hvers konar leiðtoga íslenska þarf kirkjan til þess að leiða sig inn í nýja tíma og hvað geta þeir leiðtogar lagt af mörkum til samfélagsins?

Samtök um þjónandi forystu á Íslandi halda námskeið í Skálholti dagana 4-5. október þar sem einkum verður fjallað um þessi atriði. Kenninguna um þjónandi forystu má rekja aftur til byrjunar áttunda áratugsins en hún hefur fengið aukinn hljómgrunn á síðustu árum í kjölfar þess uppgjörs sem farið hefur fram. Með þjónandi forystu er horft til þess þjónustuhlutverks sem leiðtoginn hefur og þau markmið hans að skapa fleiri leiðtogaefni í kringum sig. Hugsjónir hans og metnaður beinast að samfélaginu sem hann þjónar fremur og setur hann þá framar sínum eigin hagsmunum.

Á námskeiðinu verður farið ofan í saumana á þessum hugmyndum, fjallað um kristilegar rætur þeirra og þær settar í samhengi við aðstæður þjóðkirkjunnar á okkar tímum. Námskeiðshaldarar eru sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir og sr. Skúli S. Ólafsson en þau sitja bæði í samtökum um þjónandi forystu á Íslandi.

Á námskeiðinu verður mikil áhersla lögð á umræður og að miðla þeirri þekkingu sem þátttakendur sjálfir hafa af leiðtogastörfum innan kirkjunnar.

Dagskrá námskeiðsins

Sunnudagur 4. október

  • Kl. 16:00 Mæting. Kaffi.
  • Kl. 16:30 Kirkja (fyrsta lota):
  • Almenn kynning á þjónandi forystu (Skúli)
  • Jesús og þjónandi forysta (Auður Eir)
  • Kl. 18:30 Kvöldverður
  • Kl. 19:30 Setustofa (önnur lota):
  • Hlutverkaleikir (Auður Eir)
  • Kl. 21:00 Formlegri dagskrá lokið

Mánudagur 5. október

  • Kl. 08:00 Morgunverður.
  • Kl. 09:00 Morguntíðir í kirkju.
  • Kl. 09:30 Kennslustofa (þriðja lota):
  • Lokuð og opin menning (Skúli)
  • Kl. 12:00 Hádegisverður
  • Kl. 13:00 Kennslustofa (fjórða lota):
  • Fyrirlestur: Kynning á hugmyndum Mary Parker Foller (Auður Eir)
  • Sameiginleg verkefni um gildi einstaklinga, samstarfs, valddreifingar og ágreinings sem er unnið úr.
  • Spurning:  Hvaða stöðu finnst þér þú hafa í þessum málum í kirkjunni?
  • Kl. 15:00 Kaffi og námskeiðslok.

Námskeiðið kostar kr. 14.000 og er þá innifalin gisting, fullt fæði og námskeiðsgjald.

Rafræn skráning fer fram hér að neðan, einnig má hringja í Skálholtsskóla síma 486-8870 eða senda tölvupóst á netfangið rektor[hjá]skalholt.is.

[contact-form 404 "Not Found"]