Sálgæsla á erfiðum tímum
Dagana 20.-22. september nk. verður hér í Skálholti boðið upp á símenntunarnámskeið Þjóðkirkjunnar og guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands í samstarfi við Djáknafélag Íslands. Yfirskrift námskeiðsins er Sálgæsla á erfiðum tímum og er einkum ætlað djáknum. Kennari er Berit Okkenhaug frá Modum Bad í Noregi, Einar Lundby stiftelse. Hún hefur starfað sem sóknarprestur, sjúkrahúsprestur og kennir sálusorgun við Menighetsfakultet í Ósló. Hún er höfundur bókarinnar Når jeg ser ditt ansikt.
Námskeiðið hefst sunnudagseftirmiðdaginn með kvöldsöng, kvöldverði og kynningu og því lýkur síðdegis þriðjudaginn 22. september. Námskeiðið gefur djáknum einstakt tækifæri til að fá leiðsögn í samferð okkar með fólki í erfiðleikum.
UPPBÓKAÐ ER Á NÁMSKEIÐIÐ


