Færeyskur kór í heimsókn

Sérvalin mynd

Sunnudaginn 6. september nk. kl. 14.00 heldur færeyski kammerkórinn Tarira tónleika í Skálholti. Hann mun auk þess syngja í messu í Skálholtsdómkirkju kl. 11.00.

Nafn kórsins kemur úr listasmiðju færeyska rithöfundarins Williams Heinesens, þar sem kvenlega draumadísin Tarira er tákn leiks, fegurðar og lista. Kórinn hefur sjö ára starfsferil að baki og syngur bæði verk eftir Heinesen og önnur færeysk og norðurlensk ljóðskáld.

Í kammerkórnum Tariru eru 19 söngvarar, sem hafa ásamt stjórnanda sínum, Sunleifi Rasmussen, gert garðinn frægan bæði heima og heiman og fengið mikið lof fyrir tónleika sína víða hvar á Norðurlöndum. Kórinn hefur sérhæft sig í endurreisnartónlist og nútímatónlist. Á komandi tónleikum eru nútímaverk á skránni.

Sunleif Rasmussen er kórstjórnandi og tónskáld, en erlendis þó fyrst og fremst þekktur fyrir tónsmíðar sínar. Hann fékk tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2002 fyrir fyrstu færeysku symfóníuna: Symfoni nr 1 Oceanic Days, sem upphaflega var flutt í Norðurlandahúsinum í Tórshavn af Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Bernharðar Wilkinsonar.

Tarira var tilnefnd fyri hönd Færeyja til tónlistaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2007, og  2008 kom  fyrsti geisladiskur kórsins, „Dögg“, með norðurlenskum og færeyskum nútímaverkum.

Á Íslandi fer Tarira að flytja verk úr „Heimstónum“, tónleikaröð, sem kórinn hélt í Færeyjum síðla vors 2009, auk fleiri nýrra færeyskra verka, sem ekki hafa verið flutt áður á Íslandi.  

Kórinn, Tarira,  kemur fullur  tilhlökkunar í heimsókn til nágranna sinna í vestri.

Efnisskrá:

  1. Náttúran (Pauli í Sandagerði / Christian Matras)
  2. Kvöldvísa um sumarmála (Sunleif Rasmussen / Stéfan H. Grímsson)
  3. Fossurinn (Werner Schulze / Christian Matras)
  4. O Jesu, all mein Leben (Anton Heiller / A. G. Stein)
  5. Du skal plante et træ (Per Nörgård / Piet Hein)
  6. Sláttumenn (Vagn Holmboe / William Heinesen – T.N.Djurhuus týddi)
  7. Gras (Vagn Holmboe / William Heinesen – T.N.Djurhuus týddi)
  8. Bara du går över markerna (Karin Rehnqvist / Bo Bergman)
  9. Det är vackrast när det skymmer (Kaj-Erik Gustafsson / Pär Lagerkvist)
  10. Pater Noster (Igor Stravinsky / bíbl. tekstur)
  11. Sakura (Japanskur trad. – útsetning eftir Toru Takemitsu)
  12. Sleep (Eric Whitacre / Charles Anthony Silvestri)
  13. Haustvísur til Maríu (Atli Heimir Sveinsson / Einar Ólafur Sveinsson)
  14. Smávinir fagrir (Jón Nordal / Jónas Hallgrímsson)
  15. Haldiðún Gróa hafi skó (Gunnar R. Sveinsson / Halldór Laxness)
  16. Náttarfriður (Pauli í Sandagerði / Goethe – J.H.O. Djurhuus þýddi)
  17. Blátt (Sunleif Rasmussen / Karsten Hoydal)
  18. [Einki er sum summarkvøld við strendur (H. J. Højgaard / Christian Matras)]
  19. [Dimmið (Jógvan Waagstein / Christian Matras)]