Heinrich von Biber (1644-1704)

Heinrich von Biber

Heinrich von Biber

Fimmtudagskvöldið 20. ágúst nk. kl. 18.00 verða Talnabandssónötur fiðlusnillingsins Heinrich von Biber (1644-1704) frá Bæheimi fluttar í Skálholtsdómkirkju. Biber samdi óperur, kórverk og kammertónlist en frægð hans byggist aðallega á Talnabandssónötunum (Rosenkranz sónötur eða leyndardómssónötur), þar sem strengirnir eru stilltir á mismunandi hátt til að ná óvenjulegum áhrifum. Talnabandssónöturnar eru fimmtán talsins en skiptast í þrjá hluta með fimm sónötum í hverjum hluta. Sónöturnar eru hugleiðingar um ævi Jesú Krists og Maríu Guðsmóður.

Fimm fyrstu (gleði)sónöturnar, Hinir gleðilegu leyndardómar, segja frá fæðingu Frelsarans og fyrstu tólf árunum í lífi hans. Næstu fimm (sorgar)sónöturnar, Hinir þjáningarfullu leyndardómar, fjalla um þjáningu, píslir og dauða Jesú Krists. Síðustu fimm (dýrðar)sónöturnar, Hinir dýrðarríku leyndardómar, segja frá upprisunni fram að krýningu Maríu.

Flytjendur: 

Martin Frewer, barokkfiðla. Dean Ferrell, violone og basse de violon

Um flytjendurnar:

Dean Ferrell

Dean Ferrell

Dean Ferrell

,,Staðráðinn í að spila á flautu kom ég á grunnskóla-hljómsveitaræfingu þegar ég var ellefu ára. -Það getum við rætt inni á skrifstofunni minni, sagði stjórnandinn og hélt áfram: -hmm… getur þú komið með þennan bassa þarna fyrir mig? Svo spilaði hann nokkrar nótur á píanóið og bað mig um að finna þær á bassanum. Síðan spurði hann: -Á mamma þín station bíl?“

Dean Ferrell stundaði kontrabassanám við The Juilliard School of Music en kannari hans þar var David Walter. Dean var gestafyrirlesari við The University of California á árunum 1981-83, en þar lék hann einnig undir barokkdanstímum. Hann hefur verið meðlimur í Hong Kong Philharmonic, San Diego Symphony, San Jose Symphony, Pacific Symphony, Den Norske Opera, Íslensku Óperunni og Sinfóníuhljómsveit Íslands 1990-93 og frá 1998.

Dean hefur lengi leikið og stúderað barokktónlist, og notkun violone (forvera kontrabassans). Hann tekur reglulega þátt í flutningi barokktónlistar hérlendis sem erlendis.

Martin Frewer

Martin Frewer

Martin Frewer

Martin Frewer útskrifaðist sem stærðfræðingur frá Oxford University. Á sama tíma var hann í einkatímum hjá fiðlukennaranum Yfrah Neaman. Eftir útskrift hélt hann áfram fiðlunámi í Guildhall School of Music & Drama í London hjá Yfrah Neaman og lærði þá einnig á víólu hjá Nannie Jaimeson.

Árið 1983 fluttist Martin til Íslands til að spila með Sinfóníuhljómsveitinni. Um aldamótin tók hann frí í tvö og hálft ár og vann þá sem hugbúnaðarhönnuður.

Núna starfar hann bæði við hugbúnaðargerð hjá hátæknifyrirtækinu Völku og sem tónlistarmaður. Hann spilar með Biber tríóinu, Sardas kvartettinum, Árstíðakvartettinum, Bachsveitinni í Skálholti og ýmsum kammersveitum og hópum auk SÍ.