Óperukórinn og New England Youth Ensemble
Miðvikudagskvöldið 12. ágúst nk. kl. 20.00 heldur Óperukórinn í Reykjavík og hljómsveitin New England Youth Ensemble við Columbia Union College í Bandaríkjunum tónleika í Skálholtsdómkirkju. Stjórnandi er Garðar Cortes. Einsöngvarar eru Garðar Thór Cortes, Fjóla Kristín Bragadóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir, Hallveig Guðmundsdóttir, Aron Axel Cortes og Bragi Jónsson. Tónleikarnir eru endurteknir daginn eftir í Langholtskirkju kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis í Skálholti en í Langholtskirkju kostar kr. 3000.- inn á tónleikana.
New England Youth Ensemble var stofnuð fyrir 29 árum af dr. Virgina-Gene Rittenhouse. Á tónleikunum mun kórinn og hljómsveitin flytja The Vision of the Apocalypse eftir Rittenhouse. Aðgangur er ókeypis. Myndin er tekin á tónleikum kórsins og hljómsveitarinnar árið 2008 í Carnegie Hall í New York.


