Petite messe solennelle
Föstudaginn 5. júní nk. kl. 20.00 heldur finnski kórinn Canzonetta Nova tónleika í Skálholtsdómkirkju. Þar verður flutt verkið Petite messe solenelle eftir Gioachino Rossini. Aðgangur er ókeypis.
Einsöng með kórnum syngja Hulda Björk Garðarsdóttir, sópran, Sesselja Kristjánsdóttir, messósópran, Garðar Thor Cortes, tenór, og Davíð Ólafsson, bassi. Mikko Niemi spilar á píanó og Bjarni Jónatansson á harmoníum.
Stjórnandi er Erkki Rajamäki.
Þess má geta að kórinn heldur tónleika í Langholtskirkju sunnudaginn 7. júní kl. 20.00.


