Efnahagshrunið á Íslandi
Dagana 13.-14. mars nk. verður boðið upp á fyrsta flokks námskeið fyrir almenning í Skálholti um efnahagsástandið. Yfirskrift námskeiðsins er Efnahagshrunið á Íslandi. Af siðferði og siðleysi í aðdraganda og kjölfar þess. Kennarar verða þeir Vilhjálmur Bjarnason lektor við viðskiptadeild Háskóla Íslands og Stefán Einar Stefánsson guðfræðingur og viðskiptasiðfræðingur hjá Ethikos í Háskólanum í Reykjavík. Vilhjálmur og Stefán Einar hafa haldið fjölmarga fyrirlestra um þetta efni um land allt að undanförnu við mjög góðar undirtektir viðstaddra.
Námskeiðið hefst á föstudeginum kl. 18.30 með sameiginlegum kvöldverði og endar kl. 15.00 á laugardegi. Námskeiðsgjald er kr. 8000.- og verð fyrir gistingu og fullt fæði er 10.500.- kr. Skráning er þegar hafin í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor@skalholt.is.
Dagskrá:
Fös. 13. mars
18.30 Kvöldverður
20.00 Vinnustofa I: „Hrunið mikla“ – Vilhjálmur Bjarnason
22.00 Umræður í setustofu
Lau. 14. mars
08.00 Morgunverður
09.00 Morguntíðir í kirkju
09.30 Vinnustofa II: Var framið valdarán á Íslandi? – Stefán Einar Stefánsson
11.15 Vinnustofa III: Siðferði á fjármálamarkaði – Vilhjálmur Bjarnason
12.30 Hádegisverður
13.15 Vinnustofa IV: Á hvers konar siðferði skal endurreisnin byggja? – Stefán Einar Stefánsson
15.00 Kaffi og námskeiðslok
Allir áhugasamir velkomnir!
- Vilhjálmur Bjarnason
- Stefán Einar Stefánsson




