Starf organista í Skálholti
Stjórn Skálholts og kirkjusóknir í Skálholtsprestakalli auglýsa starf organista í Skálholti laust til umsóknar. Um er að ræða samstarfsverkefni Skálholts og kirkjusóknanna um fullt starf organistans.
Helstu verkefni:
Organisti í Skálholti annast orgelleik og kórstjórn vegna helgihalds Skálholtsstaðar og Skálholtsprestakalls. Auk þess er þess vænst að organisti hafi frumkvæði að samstarfi og samþættingu annars tónlistarstarfs í Skálholti og sé reiðubúinn að annast ákveðin sérverkefni sem tengjast starfi Skálholtsskóla.
Menntun og hæfniskröfur:
Áskilin er formleg menntun á sviði kirkjutónlistar, svo sem kantorspróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða sambærileg menntun.
Um launakjör fer eftir kjarasamningi FÍO/Organistadeildar FÍH og launanefndar Þjóðkirkjunnar frá 16. apríl 2008.
Umsóknarfrestur er til 5. mars nk. og skulu umsækjendur fyrir þann tíma senda umsóknir sínar ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil til Skálholtsstaðar 801 Selfoss.
Nánari upplýsingar veita sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup, sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur, Hólmfríður Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri og Kristinn Ólason rektor Skálholtsskóla.


