Annað söngnámskeið ársins 2009
Vegna mikillar eftirspurnar og biðlista hefur verið ákveðið að bjóða upp á annað söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar í Skálholti á þessu ári. Námskeiðið verður haldið dagana 19.-22. febrúar nk. og er ætlað byrjendum og framhaldsnemendum. Jón Þorsteinsson er prófessor við tónlistarháskólann í Utrecht, Hollandi. Í tónlistarkennslu sinni styðst hann við svokallaða Lichtenbergeraðferðafræði um uppruna hljóms í mannslíkamanum. Þetta er starfræn aðferð sem þróuð hefur verið í Lichtenberg í Þýskalandi. Aðferðin gengur út á algjöra og eðlislæga þróun raddarinnar sem hljóms og aðgreiningu hljóms og tóns án þess að utanaðkomandi truflun hafi of mikil áhrif. Einnig verður fjallað um kennslufræði Lampertis og Piero Tosi sem og Jóhanns Friedrichs Agricola. Boðið verður upp á hóptíma, fyrirlestra og umræður auk þjálfunar. Laufey Helga Geirsdóttir og Tómas Guðni Eggertsson organisti munu aðstoða Jón við námskeiðið og annast tiltekna þætti þess. Fólk er eindregið hvatt til þess að taka með sér þá tónlist sem það er að fást við.
Jón á farsælan söngferil og hefur mikla reynslu af kennslu söngs. Hann nam söng við tónlistarháskólann í Osló, tónlistarháskólann í Árósum og var í einkatímum hjá Arrigo Pola á Ítalíu. Frá 1998 hefur hann numið hjá Gíselu Rohmert í Lichtenberg í Þýskalandi. Jón Þorsteinsson söng fyrstur Íslendinga í kór Wagnertónlistarhátíðarinnar í Bayreuth í Þýskalandi. Hann var í tvö ár í kór hollensku ríkisóperunnar í Amsterdam og einsöngvari þar á tímabilinu 1982-1996. Jón hefur undanfarin ár kennt söng við Nýja Tónlistarskólann, Tónlistarskóla Mosfellsbæjar og söngskóla Sigurðar Demetz svo og söng, kennslufræði og aðferðafræði við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Í fyrra gaf Jón út sálma og trúarljóð á geisladisknum „Ó, Jesú, að mér snú“ við undirleik Harðar Áskelssonar organista í Hallgrímskirkju en diskurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur. Jón er eftirsóttur söngvari bæði vestan hafs og austan.
Eins og fram kemur hér að framan hefst námskeiðið á fimmtudegi, 19. febrúar kl. 18.00. Því lýkur kl. 15.00 sunnudaginn 22. febrúar.
Þátttökugjald á námskeiðinu eru 15.000.- kr., fullt fæði og gisting í eins manns herbergi með salerni og sturtu tæpa þrjá sólarhringa er aðeins 27.000.- kr. Heildarkostnaður er því 42.000.-kr. Óafturkfræft staðfestingargjald er kr. 12.000.- sem greiðist fyrir 16. febrúar. Nánari upplýsingar um tilhögun námskeiðsins og skráning í síma 486 8870 og með netfanginu harpa@skalholt.is.


