Faðir metropólitan Kallistos Ware
Helgina 15.-17. maí verða sérstakir fræðslu- og kyrrðardagar í Skálholti með föður Kallistos frá Oxford. Kallistos hefur verið í forsvari fyrir samkirkjulegt starf kirkjunnar af Konstantínopel. Kallistos stundaði nám í klassískum fræðum og guðfræði í Wenstminster og Magdalene College í Oxford. Hann gekk í Austurkirkjuna árið 1958, þá 24 ára gamall, og ferðaðist um Grikkland í nokkur ár. Hann dvaldi m.a. í klaustri heilags Jóhannesar á eynni Patmos og á Aþosfjalli (sjá mynd). Kallistos hefur skrifað allmargar bækur og fjallað ítarlega um kristna íhugun og andlega uppbyggingu.
Kallistos mun fjalla um bæn hjartans í Skálholti og miðla af reynslu sinni. Dagskráin hefst með kvöldbænum í Skálholtsdómkirkju kl. 18.00 og henni lýkur eftir hádegi á sunnudag. Skráning er þegar hafin í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor@skalholt.is. Helgin kostar með öllu (dagskrá, gisting og fullt fæði) 18.000.- kr.
Þess má geta að á föstudag kl. 12.10 mun Metropolitan Kallistos Ware halda almennan fyrirlestur í kapellu Háskólans í boði Guðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Yfirskrift fyrirlestrarins er: Orthodox spirituality.



