Fjölmenni á opnun ljósmyndasýningar
Sveitungar Sigurðar Sigmundssonar eða Sigga í Syðra (efri mynd) eins og hann er oftast kallaður fjölmenntu á opnun ljósmyndasýningar sem fram fór í Skálholtsskóla í gær. Að nýliðnu sjötugasta aldursári Sigurðar þótti við hæfi að gera myndum hans góð skil og þess vegna settu Skúli Sæland f.h. Menningarmiðlunar ehf. og Skálholtsstaður upp sýninguna í Skálholtsskóla í samstarfi við Sigurð. Sýningin heitir Sveitasýn. Sjónarhorn Sigga í Syðra á uppsveitir Árnessýslu.
Í sýningunni er leitast við birta sýn Sigurðar á uppveitirnar og mannlífið þar. Sýndar eru myndir sem eru táknrænar fyrir sjónarhorn Sigurðar á uppsveitir Árnessýslu. Myndirnar eru sýndar innrammaðar, með skjávarpa, skyggnumyndavél og í kvikmynd auk þess sem gefið hefur verið út úrval mynda eftir hann og Sigurgeir bróður hans í sérstöku Uppsveitadagatali 2009. Einnig gefst færi á að sjá gripi úr fórum Sigurðar sem tengjast starfi hans á sýningunni.
Á neðri myndinni má sjá Skúla Sæland sagnfræðing tala við Jóhannes Sigmundsson ferðaþjónustubónda í Syðra-Langholti.
Sýningin er opin alla sunnudaga frá kl. 14-17 fram í maí.



