Sveitasýn

Sérvalin mynd

Sigurður Sigmundsson hefur verið ljósmyndari í um hálfa öld. Nær allan þann tíma hefur hann búið á Syðra–Langholti og Dalbæ í Hrunamannahreppi og ávallt haft myndavélina innan seilingar.

Ást Sigurðar á dýrum og þá sérstaklega hestum er auðsæ á myndefni hans auk þess sem Sigurður fylgist vel með atvinnulífi og búnaðarháttum. Þá bera mannamyndir hans vitni um næmt auga hans fyrir samtímamönnum í uppsveitunum.

Sigurður hefur unnið lengi sem fréttaljósmyndari hjá fjölmiðlum á borð við Sunnlenska fréttablaðið, Eiðfaxa og Morgunblaðið þar sem hann hefur sömuleiðis verið fréttaritari í 36 ár. Margar mynda hans hafa prýtt forsíður þessara blaða og hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir myndir sínar. Hefur Sigurður líka fengið myndir birtar erlendis.

Nú að nýliðnu sjötugasta aldursári Sigurðar þótti við hæfi að gera myndum hans góð skil og því hafa Skúli Sæland f.h. Menningarmiðlunar ehf. og Skálholtsstaður sett upp ljósmyndasýningu í Skálholtsskóla í samstarfi við Sigurð. Sýningin heitir Sveitasýn. Sjónarhorn Sigga í Syðra á uppsveitir Árnessýslu.

Í sýningunni verður leitast við birta sýn Sigurðar á uppveitirnar og mannlífið þar. Sýndar verða myndir sem eru táknrænar fyrir sjónarhorn Sigurðar á uppsveitir Árnessýslu. Verða myndirnar sýndar innrammaðar, með skjávarpa, skyggnumyndavél og í kvikmynd auk þess sem gefið verður út úrval mynda eftir hann og Sigurgeir bróður hans í sérstöku Uppsveitadagatali. Einnig gefst færi á að sjá gripi úr fórum Sigurðar sem tengjast starfi hans á sýningunni.

Þessi sýning er mikilvægur liður í kynningu og varðveislu myndasafns Sigurðar sem er ómetanlegur vitnisburður um menningararf uppsveita Árnessýslu.

Ljósmyndasýningin opnar kl. 14:00 sunnudaginn 18. janúar og verður til 18:00.
Sýningin verður opin eftir það á sunnudögum frá kl. 14:00 til 17:00 fram í maímánuð.