Tvær góðar ráðstefnur!
Í október voru haldnar tvær ráðstefnur í Skálholti sem báðar tókust mjög vel. Sú fyrri var alþjóðleg og fjallaði um Hammúrabí-lögin en hin síðari var íslensk og fjallaði um um menntun og menningu í Skálholtsstifti 1620-1730.
Dagskrá fyrri ráðstefnunnar 2.-3. okt. var sem hér segir:
Rektor Skálholtsskóla setti ráðsefnuna og flutti þvínæst erindið:
Einige Beobachtungen zu Codex Hammurapi §§ 280-281 im Kontext von §§ 278-282
Eva Dombradi sérfræðingur í akkadískum lögum við Otto-Friedrich-háskólann í Freiburg:
Form und Intention der Gesetzgebung im Codex Hammurapi
Hans Neumann prófessor í fornmálum og fornfræðum Miðausturlanda við Wilhelms-háskólann í Münster:
Aspekte der altorientalischen Gesetzgebung der neusumerischen und altbabylonischen Zeit im Spannungsfeld von Theorie und Praxis.
Ralf Rothenbusch gamlatestamentisfræðingur við Otto-Friedrich-háskólann í Freiburg:
Zur Hermeneutik der Gebotsüberlieferung in der Tora. Biblische Ansätze einer Rechtshermeneutik im Pentateuch
Horst Steible sérfræðingur í akkadísku við Otto-Friedrich-háskólann í Freiburg:
Die Legitimation der Rechtssetzung im Codex Hamurapi und seinen Vorläufern
Raymond Westbrook prófessor í fornfræðum Miðausturlanda við John Hopkins University í Bandaríkjunum:
The Law of Evidence in Codex Hammurabi
Tveir gestafyrirlestrar voru fluttir á föstudeginum en það voru Christian Bickel lögfræðingur frá Wiesbaden og séra Skúli Ólafsson sóknarprestur í Keflavík. Á myndinni má sjá hluta hópsins fyrir framan Skógarfoss, frá vinstri: Prófessor Hans Neumann, Christian Bickel, Frú Westbrook og Prófessor Raymond Westbrook og dr. Eva Dombradi. Á myndina vantar Kristin Ólason, prófessor Horst og Marianne Steible og Ralf Rothenbusch.
Síðari ráðstefnan var haldin 17.-19. október Þar voru eftirfarandi erindi flutt:
Föstudagur 17.10:
Loftur Guttormsson:
Gísli Oddsson Skálholtsbiskup og hrísvöndur Drottins
Þórunn Sigurðardóttir:
“A sojourner for breeding sake”. Um Þorleif Gíslason frá Hlíðarenda og Skálholtsakademíuna á tíunda áratug 17. aldar
Laugardagur 18.10:
Margrét Eggertsdóttir:
Handritamiðstöðin í Skálholti.
Sigurður Pétursson:
“Obscurus Clarum Te Vir Venerande Saluto”
Skúli Sæland:
Steinboginn og hústrú Helga.
Vilborg Auður Ísleifsdóttir:
Hugleiðingar um menntun kvenna í kaþólskum og lútherskum sið
Mjöll Snæsdóttir:
Skálholtsskóli til forna
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir:
Tónlistararfleifð Þórðar biskups
Hrafn Sveinbjarnarson:
Nokkur orð um tónlistarkennsku í Skálholti
Guðrún Ingólfsdóttir:
Með hempuna á hælunum. Rýnt í sjálfshjálparbók Tyrfings Finnssonar Skálholtssveins
Gunnar Marel Hinriksson:
Menntun og starf Páls Björnssonar í Selárdal
Silja Hrund Barkardóttir:
“Ísland reiknast liggja og lafa á norðanverðum vesturhölluðum jarðarhnetti”. Síra Jón Daðason á Arnarbæli og Gandreið hans
Tónlistarflutning önnuðust Voces Thules undir stjórn Sigurðar Halldórssonar sem er listrænn framkvæmdastjóri Sumartónleikanna í Skálholti. Á myndinni með þessari frétt má sjá hluta þátttakenda hlýða á lýsingu Mjallar Snæsdóttur forneifafræðings fjalla um rústirnar í Skálholti.


