Safnahelgi á Suðurlandi
Skálholtsstaður tekur þátt í safnahelgi á Suðurlandi dagana 7.-9. nóvember nk. Safnið í kjallara kirkjunnar verður opið öllum alla helgina án endurgjalds. Þá verður boðið upp á sérstaka dagskrá um Jón Arason af þessu tilefni.
Á föstudagskvöld hefst dagskrá í Skálholtsdómkirkju kl. 20.30. Dagskráin er tileinkuð Jóni Arasyni og sonum hans en 7. nóvember er dánardagur þeirra. Séra Egill Hallgrímsson sóknarprestur og Kristinn Ólason rektor munu flytja erindi af þessu tilefni. Tónlistarflutningur verður í höndum Glúms Gylfasonar organista. Sunginn verður náttsöngur, gengið um safnið í kjallaranum, út göngin og í blysför að minnisvarðanum um Jón Arason. Að dagskrá lokinni verður boðið upp á kaffi í boði Skálholtsskóla.
Sunnudaginn 9. nóvember verður boðið upp á sérstaka staðarskoðun með leiðsögn kl. 14.00. Í kjölfarið verður boðið upp á kaffihlaðborð Valgerðar biskupsfrúar í Skálholti.
Allir eru velkomnir.


