Söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar

jon__fcc5.jpgUm helgina verður haldið þriðja söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar í Skálholti á þessu ári. Uppbókað er á námskeiðið. Jón styðst við svokallaða Lichtenbergeraðferðafræði um uppruna hljóms í mannslíkamanum. Þetta er starfræn aðferð sem þróuð hefur verið í Lichtenberg í Þýskalandi. Aðferðin gengur út á algjöra og eðlislæga þróun raddarinnar sem hljóms og aðgreiningu hljóms og tóns án þess að utanaðkomandi truflun hafi of mikil áhrif. Einnig verður fjallað um kennslufræði Lampertis og Piero Tosi sem og Jóhanns Friedrichs Agricola. Boðið verður upp á hóptíma, fyrirlestra og umræður auk þjálfunar.

Jón á farsælan söngferil og hefur mikla reynslu af kennslu söngs. Hann nam söng við tónlistarháskólann í Osló, tónlistarháskólann í Árósum og var í einkatímum hjá Arrigo Pola á Ítalíu. Síðar nam hann hjá Gíselu Rohmert í Lichtenberg í Þýskalandi. Jón Þorsteinsson söng í kór Wagnertónlistarhátíðarinnar í Bayreuth í Þýskalandi um árabil. Hann var í kór hollensku ríkisóperunnar í Amsterdam til fjölda ára og söng margoft einsöng með kórnum. Jón hefur undanfarin ár kennt söng við Nýja Tónlistarskólann, Tónlistarskóla Mosfellsbæjar og söngskóla Sigurðar Demetz svo og söng, kennslufræði og aðferðafræði við Tónlistarskóla Þjóðkirkjunnar. Jón hefur verið ráðinn sem tónlistarkennari við tónlistarháskólann í Utrecht, Hollandi, frá og með næsta hausti en hann mun bjóða upp á 3-4 námskeið í Skálholti.