Umhverfismálþing Þjóðkirkjunnar á Jónsmessu

ÞingvellirFræðsludeild Biskupsstofu og Skálholtsskóli efna til málþings um umhverfismál undir fyrirsögninni Ísland — náttúrulega dagana 23.-24. júní.

Hver er framtíðarsýn stjórnmálamanna, hagsmunaaðila, fagfólks, heimspekinga og guðfræðinga á náttúru Íslands á 21. öld? Hvað ber að vernda og hvað má nýta? Þessum spurningum verður reynt að svara á málþingi í Skálholti nú á Jónsmessu á vegum Þjóðkirkjunnar.

Málþingið hefst á laugardag 23. júní með máli umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnardóttur en svo segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna frá sinni framtíðarsýn í þessum efnum. Á eftir verða pallborðsumræður fulltrúa allra stjórnmálaflokka.

Þá munu hagsmuna- og fagaðilar einnig fjalla um náttúru Íslands á 21. öldinni með tilliti til verndunar eða nýtingar. Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, Árni Finnsson formaður Náttúrverndarsamtaka Íslands og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisstjórnunarfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins verða með framsögu um efnið.

Á laugardagskvöld kl. 22.30 og fram á Jónsmessunótt verður svo gengið á Vörðufell og fjallað um náttúru í trú og bókmenntum.

Á Jónsmessu, sunnudaginn 24. júní heldur málþingið svo áfram. Jón Á. Kalmannsson heimspekingur flytur ávarp sem hann nefnir Átökin um náttúruna og átökin um mannshugann. Í hverju finnur maður gildi? Kristinn Ólason rektor Skálholtsskóla fjallar um ráðsmennskuhugmyndina í hinum gyðing/kristna arfi og Jóna Bjarnadóttir umhverfisstjórnunarfræðingur fjallar um umhverfisstarf á vegum kirkjunnar.

Málþinginu lýkur svo með messu í Skálholtskirkju kl. 11 á sunnudagsmorgun sem helguð verður umhverfi og náttúru í hinum kristna arfi.

Fjölmiðlum er velkomið að fylgjast með málþinginu.

Frekari upplýsingar veitir Halldór Reynisson, í síma 856 1570 og Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla í síma 4868870 og 8998678.